Velkomin á síðunaaa <3

Velkomin á síðunaaa <3

06.04.2007 18:18:34 / sigthora

Páskafrí

Jæjja er núna heima og láta mér leiðast. En já bloggfærslum á þessari síðu hefur fækkað mjög, af' því að ég er komin með tvær aðrar síður með nokkrum stelpum
Ein þeirra er
www.blog.central.is/-beibzz og er ég með hana ásamt Ingibjörgu og Sylvíu;*
Og síðan er það www.blog.central.is/-dvergarnir7 og erum við Gugga, Kristín, Hulda, Berglindi, María og Áslaug með sú síðu og erum við 7 dvergar, nema kannski ein;) híhí

En ég hef ekki gert mart í mínu páskafríi, en áætlað ýmislegt=P og mis mikið hefur orðið úr því.
Og er ég núna að vonast til að geta náð í hjólið mitt inn á ak og farið að hjóla eitthvað, en er svona frekar bjartsýn með það=).. en alltaf best að halda í vonina;).                                    

                                                                                          

      Umhh já hvað á maður að segja meira. *hugs* hugs* .
*ég á páskaegg*
*það er númer 5*
*og er það meira en nó fyrir mig*
*það er lítið sem ekkert að gera í páskafríinu*
*og ekki vill neinn koma og halda mér félgsskap*
*vona að það rætist eitthvað úr páskafríinu*
*langar á palla á sunnudaginn*
*en maður þarf þá far til Ak*

En svo getur verið að maður kíkir á þær stöllur Sylvíu og Svanhildi í kvöld sem eru að vinna upp í loni=).. trufla þær við vinnuna í smástun;) thíh´

 En ætla ekki að hafa það lengra í þetta skifitð

bleeee


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 11:05:36 / sigthora

Föstudagur

Hæhæ, í dag var kennarinn ekki í fyrsta tíma þannig ég fekk að sofa út, en svo vaknaði ég til að fara í tíma kl 9:55 en nei þegar ég var komin upp í skóla komst ég að því að hún Íris var heldur ekki, þannig að ég drattaðist bara heim aftur, en hefði getað sofið enn þá lengur=/.

OG svo loksins er kominn föstudagur:) þótt mér finnst vikan búin að vera óvenju fljót að líða, og já hún Kristín mín á afmæli í dag 'Til hamingju með það elskan;*' og ætlum við nokkrar stelpur að hafa þá gaman í kvöld, fara út að borða t.d. og svo er eftir að ráðast úr restinni, við finnum eitthvað skemmtilegt til að gera^^,

Og um daginn var ég í fjórum prófum á fjórum dögum(y) og vonandi fekk ég yfir 7 í félagsfræðinní þá fæ ég að sleppa við lokaprófið;), og svo var eitt prófið í íþróttafræði og ef ég næ ekki yfir 4,5 þá fell ég í áfanganum og ég er skít hrædd við að fá út úr því, því mér gekk ekkert allt of vél í því.

Sigþóra Kveður að sinni

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 20:14:36 / sigthora

Árshátíð og vélsleða mót.

Í gær var haldin hin árlega árshátið og það var geeðveikt á henni:D Sonur hans Ladda;)(Þórhallur) var veislustóri og uppistandari og gerði það með stæl! Svo að brorðhaldi loknu tók Í svörtum fötum við um hálf 12 leitið og spilaði til 3 og vá hvað það var gaman, dansaði nær allann tíman=D

 Og svo þurfti ég að vakna um hálf níju leitið í morgun til að fara heim, og fór á sleðamótið og það var bara nokkuð fínt, frábært veður, nema þar til rétt í lokin. Og svo auðvitað vann Mývetningur mótið;) eða réttara sagt pro flokkinn.

en það er matur þannig ég segi þetta gott:P.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 14:42:08 / sigthora

Löng helgi framundan=)

Hæhæ, nú framundan er að koma löööng helgi;D semsagt afmæli konu Helga fagra hehe og svo er starfsdagur þannig þetta verður 4 daga frí. Og þá ætla ég að skella mér til Reykjavíkur og fríka út í búðum.=).

Og í dag er svo nefndi öskudagur, og hef ég eiginlega mist af honum:cry: ég sem ætlaði að fara í búðir að syngja:^) en enginn vildi koma með mér! pff þroskaða lið!, nema Berglind:P Hún vildi koma með mér en það uppgvötaðist ekki fyrr en í morgun:cry:, en svona er þetta;) verð bara að taka þetta með stæl á næsta ári hahah;D

Svo var ég veik nær alla síðustu viku en þá var kvennakvöld í MA og ákvað að skella mér á það því ég nennti svo ekki að hanga lengur á vistini en varð samt helmingi lasnari eftir þaðXD..en það var samt ágætt:P en samt betra í VMA;)

          Nature

 En nenni ekki að hafa það lengra, ætla að fara að ráfa um vistina eins og kleppsbúi:lol: hehe, kveð að sinni:)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 11:17:26 / sigthora

MIðvikudagur

Hæhæ gott fólk:) Nú er ég og Hulda loksins komnar saman í herbergi, hún flutti í mitt herbergi og María til Guggu, og svo herbergisfélagi minn fór með Hafeyju í eitthvað annað herbergi. Þannig nú er bara endalaust djamm á okkur tvem;P hehe.  En í Gær þá fór ég og Hulda að breita í herberginu okkar, og þetta er geðveikt kósí eitthvað^^ við settum rúmmin okkar saman við gluggan og svo hillusamstæðurnar svona í sveig við rúmmin okkar, eða já:P frekar erfitt að útskýra, bara allir að koma og kíkja á;).

        Svo auðvitað líka í gær þá LOKSINS kláraði ég að tengja heimabíóið mitt;D ég er búin að hafa það hérn á vistini lengi fyrir áramót en bara alltaf ótengt:P  

Og á eftir er ég að fara að fá mér gelneglur:P wee. þá verðum ég og Inga bara úper svalar eins og alltaf 8) það þarf ekkert að spurja að því!

Næstu helgi er svo skíða mót á Ísafirði en veit ekki hvort ég keppi á því ennþá óákveðið, en vá nenni svo ekki að fara að keyra til Ísafjarðar í einhverja klukkutíma og verða svo veðurteft eins og í fyrra það var fúlt:lol:.

Og ójj leikurinn í gær! Nú hata ég Dani! Þetta var einn af þeim fáum leikjum sem ég sá og var gjörsamlega að missa mig!! var að drepast í hálsinum eftir þetta,hehe, og þetta var sko bara hunda heppni hjá þessum Dönum! Og svo þegar leikurinn var búinn þá heirðist reiðiöskur um alla vistina, það var nú pínu fyndið;P, þótt það var hvorki staður né stund til að hlæja;)

En Sigþóra NÖrD hveður að sinni;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 17:57:37 / sigthora

Hér er ég um mig frá mér til mín=P

Hææææj fólk! var að koma af rúnntinum meða pabba8) fórum út á vatn og bara læti=)...  og já ég fór semsagt heim um helgina og er mjöög svo lítið að gera hérna!. svaf til hálf fjögur:( var geðveikt pirruð á að enginn vakti mig, lol :lol:

En svo var pabbi að segja mér áðan að það verður keppt í motocrossi á unglingalandsmótinu í sumar=D:haha:=D og ég ætla sko feitast að taka þátt! hlakka geðveikt til=P (haha ein svolítið snemma í þessu).

 En nenni engan veginn að blogga meira því ég er að fara að horfa á leikin Ísland-Slovenía;P

Þannig áfram Ísland!!=)


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 17:55:05 / sigthora

Helgin

Hæhæ var að koma inn eftir að hafa verið voða dugleg að út að hlaupa8)

En í gær var hið árlega þorrablót í sveitinni og vitaskuld komst ég ekki á það eins og alltaf því það var skíðamót um helgina, og fór frekar á það, en það var samt frekar tilgangslaust því mér gekk EKKI vél á því " stóð ekki seinni ferðina í sviginu og var bara leleg í stórsviginu:whut:,,

Og Sylvía var líka að keppa þannig að við reyndum bara að gera gott úr gærdeginum og fórum í bíó og svona, keyptum okkur gerfineglur;D sem voru allavegana á litin( fyrir svona 6 ára krakka, en við erum ungar í anda;]) Og svo hér á vistinni horfðum við á ógeðslega hrillings mynd og þá komu neglunar sér vél til að naga8| hehe

En ákvað að skella bara einhverju stuttu hingað inn þannig að ég hef þetta kott að sinni=)

Sigþóra trélitaaðdáandi kveður að sinni;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 17:43:11 / sigthora

Komin heim=]

Hæhæhæhæhæhæhæhæ, er komin heim frá Austuríki, kom þann 13;D það var algjört æði þarna úti, alltaf þvílík sól og auðvitað nóg af snjónum, þótt hann jafnaðist ekkert á við og í fyrra er þá var einn mesti snjóvetur síðan ég veit ekki hvenær! Hótelið var lítið og krúttlegt og með sánar, sem maður dreif sig í eftir langan skíða dag, skíðabrekkurnar voru geeðveikar, alveg nó af þeim allavegana, það var sjaldan að maður fór oftar en tvisvar í sama brekku á dag fyrir utan æfingasvæðið.

það voru stundaðar æfingar á hverjum degi framm að hádegi og síðan var frjálst það sem eftir var að deginum!, einn daginn var farið í garpa túr og þá var skíðað 72km á einum degi, byrjuðum á skíðasvæðinu okkar í Mayerhofen og skíðað í einhvern bæ og svo tekið stutta rútu og beint upp á jökul og svo aftur til baka. Það urðu nokkur lítilvæg slys þarna úti, hann Siggi handlegsbraut sig fyrsta daginn:S og gat ekkert verið meira með og tók bara fyrsta flug heim til Íslands, og svo gerðist það einn daginn að Andréa flaug á hausinn og rotaðist í smá stund og mundi svo ekkert þegar hún kom til sjálfs síns og það er búið að gera MIIIKIÐ grín af því;D!

En ætla ekki að segja meira frá ferðinni set myndir síðar;)

Og svo í dag var fyrsti skóladagurinn minn á þessari önn, komið fullt af nýju fólki! og í Íslensku er ég með Gömlu ugluna hana Rakel(y) jeyjj vá hún er mesta bitch sem ég veit um!

En hef þetta ekki lengra í bili bæbæjj Sigþóra "Skíðastökkmaður"XD


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 21:02:47 / KatrínÓsk

NOOORGEEE^^

Hæææ allir saman! Er núna stödd á Geilo Apartment í Noregi=) geeeðveikt gaman hérna ...æfa bara á fullu! var samt ekki með í dag því að mér tókst að fljúa niður bröttustu brekkuna og lenti á hendinni og hún fór aftur í klessu=/ En ég ætla sko á æfingu á morgun eða hinn:lol: En ég og kamó gerðum síðu með fuuuulllt af myndum af ferðinni og það er http:www.blog.central.is/norge2007 og þið skulið bara skoða þar og ég ber enga ábyrgð ef augun í ykkur skaddast eitthvað af þessum hræðilegu myndum...=D ég og kamilla erum að gera það gott;) En ég heyri í ykkur og hafið það gott=) -Katrín Ósk

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 21:23:02 / sigthora

zomg zomg zomg jólafrí;D

Hæhæ, og gleðileg jól:haha:. Er bara heima í jólafríi eins og flestir, og er nánast ekki búin að gera neitt, jú sofa, er búin að sofa svona til  3 eða hálf 4 flest alla daga:$.. svo fek ég alveg helling í jólagjöf^^ t.d tvö rúmföt sem ég elska;D ein eru barabírúmföt og hin eru bleik með ballerínum á8)

Og sambandi við prófin þá náði ég auðvitað öllu:haha:

En í gær fór ég til Akureyrar með Ingu, Andra og Jóni í bíó á Tenacious D: THE PICK OF DESTINY og hún er algjör snild=D, og svo eftir bíóið var rúntað nokkuð lengi og hittum eitthvað af skemmtilegu fólki(=.Svo voru auðvitað teknar fullt af myndum;D

Og pælið í þessu ég er að fara út eftir 4 daga;D pældu í því Sylvía!;P mamma var að segja við mig um daginn að hún vissi ekkert hvenær hún væri að fara út né hvenær hún ætti að fara að pakka því hún heyrir ekki í Sylvíu á hverjum degi eða oft á dag hvað það eru margir dagar þangað til við förum út;P Eins og í fyrra,Haha,XDXD, Sylvía mín þú verður bara að koma hingað og redda málunum:D! Haha og svo meiga allir Mangar (MA-ingar) hugsa til mín þegar ég er á á skíðum út í Austuríki á meðan þeir eru í prófum =]

En hef þetta gott í bili

Kv. Sigþóra Austuríkisfari;]


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 23:53:17 / sigthora

Bara próf eftir:D

 Hæhæ, vara að koma heim úr skólanum og var þetta seinasti skóladagurinn minn þessa önn, sem er náttúrulega æðislegt:D Jólafríið bara í nánd, þótt öll prófin eru eftir=/ en það reddast.

Og um helgina fór ég heim í sveitina! Og þá ákvöðumu ég og Hanna að skella okkur til Húsavíkur að horfa á grunnskólann heima keppa í einhverri spurningakeppni þar:P og það var bara mjög gaman, hitti fullt af fólki sem maður hafði ekki séð lengi. Svo á laugardaginn fórum við fjölskyldan til Akureyrar og ég, pabbi og Steingrímur fórum á vetrarsportið. Og á sunnudaginn var lyftan opnuð heima:D og auðvitað dreif maður sig á skíði, var á gömlu skíðunum mínum sem mamma notar núna og í skónnum hennar líka hehe:P, því allt draslið mitt var hér inná Ak.

Svo í kvöld þá er ég að fara á söngvarkeppnina í MA og svo á árshátíð MA á föstudaginn8|;) eða vona allavegana:P spurning hvort stelpunum hafi tekist að ná í miða fyrir mig^^

Ætla svo að reyna að vera hérna um helgina og læra, enginn friður heima fyrir þessu fólki:P hehe, og þá mun ég náttúrulega reyna að komast eitthvað á skíði í leiðinni.

 

Kv. Sigþóra "PúlmeistariXD"


» 39 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 12:53:05 / KatrínÓsk

Nýr dagur, nýtt blogg...eða nýr mánuður nýtt blogg^^

Hæææææ=)

langt síðan að maður skrifaði hérna svo ætli maður drífi sig ekki bara í því svo það er búið:lol:

En núna er ég bara í eyðu og er á vistinni á leiðinni í bóklegann ÍÞG tíma:$ Það þýðir ræktin í dag hehe;) En þessi vika er bara búin að vera alveg hreynt fín bara;) Ég og Kamo bara einar heima og læti:haha: Í gær þá var ég svo góð að ég bauð Stínu minni í rómantískan kvöldmat;) ég er svo rómó í mér8)
Svo um daginn hringdi Stebbi Grimur í okkur Kamo og bað okkur um að koma með sér, Andra, Mána á Snowmoto uppí hlíðarfjalli og í jeppaferð=) það var algjör snilld! Ég og Kamo fórum á kostum á snowmotoinu:haha:

Síðustu helgi var ég svo bara í fjallinu heima á Ólf á skíðum=) það var samt ekki farið margar af sökum kulda og beinhimnabólgu!!:^)                   

Í gær þá fór ég í munnlegt dönskupróf og stressið var sko í hámarki þá! En svo bara var ég ógeðslega góð og spjallaði heillengi við konuna;) Svo eftir það fór ég til Kamo sem var í málmsmíði og Gunni ætlaði að vera svo góður og skutla okkur Kamo heim og þá var bíllinn hans staumlaus hehe...Strákarnir þurtu að íta bílnum eftir öllu planinu til að reyna að koma honum í gang en það gekk víst ekki hehe...En sem betur fer voru Ingó og Jakob með "próteinstöng" eins og þeir orðuðu það hehe:D En svo endaði það þannig að Jalkob skutlaði okkur heim, hann er nú nágranni okkar;) Svo eftir helgi verður stína nágranni minn því hún er að fara að flytja til hans;) Þá fær maður ekki frið fyrir henni hehe;) Sem er frábært=)

En ég nenni þessu blogg standi ekki svo að ég er farin í tíma=)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 15:17:34 / sigthora

Miðvikudagur..

Hæhææ, langt síðan að ég hef komið hingað inn:lol:,

En loksins er búið að opna lyfturnar hérna í fjallinu, og ég dreif mig á skíði um helgina:) ásamt Ingibjörgu, Steingrími og pabba8), en á laugardaginn var frekar kallt þannig að við vorum bara stutt en ágætt samt.

Svo á sunnudaginn  þá ætluðum við Steingrímur að vera úper svöl og leigðum okkur bretti hehe.. og þegar við komum uppeftir hittum við Andra og Jón, og Andri var á sínu ástkæra snowmoti og Jón á gömlu ljótu skíðunum sínum;), og þetta var bara í eitthvað annað skiptið sem ég prófaði bretti þannig að hæfleikarnir voru ekki alveg að gera sig þarna:P og strákarnir bara stungu mig af:whut: en svo í endan þá var ég bara orðin nokkuð góð gat svigað og allt ánþess að dettaXD, en þá voru fíbblin þarna farin því þau voru búin að skemma snowmotoið og brettið og skyldu mig bara eftir!:P

Og nú eru prófin rétt að skella á og maður bara fara að komast í jólafrí, shjit hvað mér hvíður fyrir íþróttafræðinni, þvílíkt bullið sem þetta er !

En ætla halda áfram að læra:)

-Sigþóra Kjúklingur:P


» 20 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 09:23:40 / KatrínÓsk

Biggi Bert

Í dag hefði hann elsku Biggi frændi orðið 28 ára=) en hann Biggi okkar lést síðastliðinn 27 maí 2006. Til hamingju með daginn Biggi minn. Við hugsum öll til þín og biðjum fyrir að þér líði vel þar sem þú ert núna. Ég veit að þér líður vel því þú getur látið alla í kringum þig líða vel=) Ég trúi samt ekki enþá að þú sért farinn..bara hreynlega skil ekki afhverju heimurinn getur verið svona vondur að taka þig í burtu frá okkur svona snöggt, Þú varst alltaf svo góður og vildir ekki nokkrum manni neitt illt.

Ég er svo ánægð yfir að hafa fengið að kynnast þér og þín er sárt saknað. En ég veit að þú fylgist með okkur og passar okkur. Blessuð sé minning þín elsku Biggi

-Katrín Ósk                      


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.10.2006 23:31:59 / sigthora

Heima!

Hæts! er heima núna og vaáá hvað það er ekkert að gera.. Allir í Rvk og eitthvað stuff.. Stalst samt inná Mývóballið í gær, og vá hvað það var vonlaust! Örugglega vonlausasta mývóball sem hefur verið haldið, það voru hrikalega fáir þarna og spiluð, tjaa ekki allt of góð tónlist. Miðað við örfáum árum þá var allt troðið þarna! Og já svo er ég komin með æfingaleifi, og þá er sko bara tekinn rúntur allar helgar=) En ég er örugglega latasti bloggari ever og nenni þar með ekki skrifa meira...

» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myndirrr;**